Öskudagsfjör og Bollukaffi
Slegið verður í tunnur og það verður spennandi að sjá hvað inní þeim leynist.
Veitt verða verðlaun fyrir flottustu krakkabúningana.
Bollur, kökur, kaffi og gos selt gegn vægu verði.
Aðgangur kr 0 fyrir félagsmenn og kr 20 fyrir utanfélagsfólk.
Eins og þið hafið væntanlega tekið eftir er heimasíðan nú komin í nýjann búning.
Þetta er alveg ný útgáfa af síðunni en líkist þeirri gömlu að ýmsu leiti.
Það er von mín að þessar breytingar á síðunni verði til þess að gera hana þægilegri í notkun fyrir okkur öll.
Ef ykkur finnst eitthvað vera athugavert eða ekki virka eins og skyldi, þá þætti mér vænt um að þið hefðuð samband við mig og verður því þá kippt í lag.
Ef þið farið inn á síðuna “Félagið” þá er hægt að senda skilaboð beint á mig með því að velja”Webmaster”
sem móttakanda á skilaboðaforminu eða þá bara að hringja í mig, númerið mitt er þar inni.
Bestu kveðjur, Jóhann
Formaður Margrét Dögg Bjarnardóttir setti fámennan fund kl 14.07
Fyrsta mál á dagskrá var kosning fundarsjóra og ritara.
Fundarstjóri var kosinn Sigurgeir Skýrnisson og ritari Rafn Benediktsson.
Næsta mál var skýrsla formanns um starfsemi síðasta starfsárs.
Fastir liðir eins og jólaball, þorrablót, páskabingó og 17 júní hátíð voru
á sínum stað þó ekki væri alltaf fjölmennt.
Konu og Karlakvöld voru haldin, svo og íþróttadagur barna.
Í mörg ár hafa verið uppi óskir um aðgang að íþróttahúsi.
Síðasta vetur varð það að veruleika og er skemmst frá því að segja að þátttaka var mjög lítil.
Reynt hefur verið að halda uppi íslenskukennslu fyrir börn síðustu 2 ár með stuðningi Vejlekommúnu.
Því hefur nú verið hætt vegna ónógrar þátttöku. (6 börn að meðaltali, þar af 5 börn stjórnarmanna).
Gjaldkeri lagði fram reikninga síðasta árs og voru þeir samþykktir.
Lagabreyting: Á síðasta aðalfundi kom fram tillaga um að gjaldkeri leggi fram uppgjör
eftir alla viðburði á næsta stjórnarfundi.
Þetta var gert síðasta starfsár og er nú bundið í lögum félagsins.
Stjórnarkosning: Aðeins gjaldkeri fráfarandi stjórnar gaf kost á sér áfram.
Vegna fámennis gekk illa að manna stjórn. Þó fannst formannsefni sem samþykkt var, svo og meðstjórnandi.
Fundarmenn ræddu hvort fresta ætti fundi.
Ákveðið var að taka kaffihlé og sem betur fer fjölgaði fundarmönnum og tókst að koma saman nýrri stjórn.
Í nýja stjórn voru kosin:
Formaður: Gunnar Freyr Kristjánsson.
Ritari: Dagbjört Óskarsdóttir.
Gjaldkeri: Rafn Benediktsson.
Formaður Íþróttanefndar: Jón Óskar Steinarsson
Formaður Skemmtinefndar: Þorbergur Bjarni Jónsson
Varamenn: Erla Hauksdóttir Jakobsen
Sólveig Höskuldsdóttir.